Í Skógarhlíðinni á Bjarnastöðum eru nú skipulagðar 19 lóðir, 4536-8027 m2 fyrir frístundahús.
Skógarbyggð 1-6 og Brekkubyggð 1-12 og 14.
Svæðið hallar móti suðri og er því mjög skjólsælt og sólríkt.
Útsýnið er einstakt; Þrír jöklar (Eiríksjökull, Langjökull og Okið), hraun, (Hallmundarhraun), ár (Hrauná, Hvítá) og skógur.
Áhugasamir, endilega komið við hjá okkur og við kíkjum á svæðið með ykkur.

Teiknaðar hafa verið þrjár stærðir af húsum á svæðið til að ná góðum heildarsvip, 78m2, 94,5 m2 og 127m2.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þrívíddarmyndir af teikningum.
Hús 78 fm
Hús 94,5 fm
Hús 127 fm Teikningar af þessari húsgerð er hægt að sjá hér.
Hægt er að fá sendan uppdrátt af hnitsettu skipulagi svæðis og teikningum sé þess óskað.
Nánari upplýsingar veita Arndís og Sigurður í s: 435-1486, 696-2479, 822-2479 eða bjarnastadir@bjarnastadir.is






|